Blessuð..
Já maður er komin á Laugar og ekki beint litlar
breytingar..

Maður býr ekki lengur hjá mömmu og pabba, heldur litlu
herbergi með herbergisfélaga, hún sem er með mér í herbergi heitir
Hekla og er svaka fín stelpa
Svo er fullt af skemmtilegu fólki í
næstu herbergjum við okkur sem er oft kíkt í heimsókn
til..
Fýlingurinn hérna, er svona sumarbúðafýlingur, mér finnst
alltaf eins og ég sé að fara heim, finnst ekki eins og ég eigi
eftir að vera hérna í heilt ár (vaaaá skelf bara við
tilhugsunina
)..
Busunin er búin og ég held að ég geti talað fyrir alla
busana hérna og sagt "GOTT MÁL !!" af því busunin hér var mjög
mikil og í gær fengu margir nóg af þessu rugli og ófáir mjög svo
pirraðir
En mér finnst ég ekki vera í skóla þannig séð, tímarnir
eru ekkert komnir í gang og maður er bara í tölvunni að fíflast á
meðan kennarinn talar um hvaða bækur allir þurfa að kaupa og
svona..
Og svo fáum við líka oftast að fara fyrr svo að það er
fínt..
En tímarnir hérna eru 60 mín. og svo 10 mín. í pásu nema
þegar það er matur..
En það er gaman að vera hérna en í gær langaði mig nú
eiginlega bara að fara heim útaf ýmsum ástæðum, fékk einhvern
veginn nóg af öllu en maður bara talaði aðeins við fjölskylduna og
hressti sig svo bara við og fór í annað herbergi þar sem allir sem
komust ekki til Akureyrar voru..
Þar var mjög fínt, spjölluðum og
ýmislegt..
En um helgar er svo sem frekar dautt hérna, sumir fara
heim til sín, aðrir fara inná Akureyri eða Húsavík og svoleiðis á
kvöldin og sumir gista þar..
En svo eru sumir bara
heima..
Maður heyrir samt mest lítið í vinkonunum heima.
Sem er
ekki gott, ég bara á ekki endalausa inneign og get ekki alltaf
hringt, því miður..
En það er bara næs að hanga inní herbergi hjá strákunum á
móti uppí rúmmi og horfa á myndir, þeir eru nefninlega með svolítið
safn af bíómyndum..
Maður kynntist þeim strax eiginlega, maður er
svo rosalega fljót að kynnast fólkinu hérna og allir mjög nánir, en
þetta er samt svona skóli þar sem allir vita ALLT um
alla..
En þetta er komið gott í bili held ég..
Elska ykkur stelpur..;* Sakna ykkar crazy
mikið..
*Knúsar og Kossar* - Lilja Björg